Ánægjulegur viðsnúningur hjá mínum mönnum!

Ég ætlaði varla að þora að horfa á Liverpool taka á móti sterkasta liði Ítalíu, Inter Mílanó, af ótta við að ógæfan héldi áfram, en ég hugsaði með mér að Liverpool hefur reyndar oft spilað eins og tvö ólík lið eftir því hvort þeir eru að spila heima í úrvalsdeildinni eða í meistaradeildinni.  Það reyndist síðan vera staðreyndin, þeir voru mun sterkari en Mílan liðið og unnu verðskuldaðan sigur!

Þar sem mínir menn eru nú úr leik í báðum bikarkeppnunum og baráttunni um Englandsmeistaratitilinn þá er Meistaradeildin eini möguleiki þeirra á titli.  Ég hef veika von um að þeir taki sig því saman í andlitinu og sigri hana! 


mbl.is Liverpool sigraði Inter 2:0
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband