Davíð neitar að víkja!

Davíð Oddsson.Ég get ekki sagt að þetta komi mér á óvart.  Davíð er þeirrar gerðar að honum finnst það væntanlega skelfileg tilhugsun að standa allt í einu uppi valdalaus, maður sem hefur haft nánast öll völd í hendi sér í tæp 18 ár!  Það sýður á kallinum, eins og sjá má af viðbrögðum hans. 

Davíð er hins vegar ekki bara að skaða mannorð sitt meira en orðið er heldur einnig sinn gamla flokk, Sjálfstæðisflokkinn, held það geti ekki verið í hans þágu að hann fari í stríð við þjóð og ríkisstjórn. Það er öllum óleikur gerður með þessum viðbrögðum. 

Í Guðanna bænum Davíð, gakktu út til að forða þér og öðrum frá meiri skaða.


mbl.is Davíð segir ekki af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú skil ég af hverju Ísland er svona illa statt, með þennan veika einstakling við  stýrið í öll þessi ár.

J.A. (IP-tala skráð) 8.2.2009 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband