Sjálfstæðisflokkurinn logar í innanflokksátökum, svo jaðrar við klofningi!

  Samkvæmt heimildarmönnum mínum úr Sjálfstæðisflokknum logar þar allt í illdeilum vegna nýkjörins formanns Bjarna Benediktssonar.  Alls óvíst er að takist að sætta stríðandi fylkingar.  Það sem fer helst fyrir brjóstið á andstæðingum Bjarna eru aðferðir þær sem hann notaði í kosningabaráttuni um formannskjörið, m.a. var hringt í fólk um miðjar nætur og því hótað öllu illu ef það styddi ekki Bjarna!

Þá segja heimildir mínar einnig að Bjarni hafi t.d. lítinn sen engann stuðning meðal sjálfstæðismanna í Reykjavík, svo eitthvað sé nefnt.  Þeir tóku því t.d. mjög illa hvernig Bjarni og hans menn tóku framboði Kristjáns Þórs, urðu bálreiðir og töldu það hið mesta óráð!  Mikil lýðræðisást það?  Nú liggur nýkjörinn formaður undir feldi til að finna leið til að sætta fylkingar, allt ku vera á suðurpunkti!

Okkur andstæðingum flokksins leiðast ekki þessi tíðindi! 

Hvað Samson eignarhaldsfélag varðar grunar mig sterklega að þar séu menn ekki með hreint mjöl í pokahorninu, eins og hjá svo mörgum af útrásarvíkingum, en meira af því síðar.


mbl.is Samson greiddi fé til Tortola
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Ílldeilur á því heimili koma mér ekki á óvart. Atkvæðatölur úr formannskjöri sýnda ekki einhug nema síður sé. Þarn hefur verið klofningur um áratugaskeið, þó honum hafi verið haldið niðri í valdatíð Davíðs. Öllu heldur að þagað hafi verið um hann.

Ekki leiðinlegt.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 6.4.2009 kl. 00:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband