22. október sl. lýsti ég þeirri skoðun minni í þessu bloggi: http://egillrunar.blog.is/blog/egillrunar/entry/683097/ að nú yrðu Samfylkingarmenn að setja Sjálfstæðisflokknum afarkosti, annaðvort að samþykkja að sækja um aðild að Evrópusambandinu eða horfast í augu við stjórnarslit og nýjar kosningar. Nú er nákvæmlega þetta að gerast eftir mínum heimildum. Ríkisstjórnin hangir í raun á bláþræði og Sjálfstæðisflokkurinn er kominn upp við vegg og á ekki nema um tvennt að velja. Annað hvort breyta þeir afstöðu sinni til Evrópuaðildar og eða samþykkja breytingar á yfirstjórn Seðlabankans eða hlutverki núverandi ríkisstjórnar er lokið. Varla þykir þeim fýsilegt að fara í kosningar við núverandi aðstæður!
Hvað Icesave deiluna varðar þá tel ég einu færu leiðina vera þá að semja um greiðslur og það strax, þó ekki um hvað sem er, ekki ef við eigum að sitja uppi með 600 milljarða eða meira sem leggjast á skattgreiðendur, en ég trúi því ekki að það geti orði svo mikið, kannski í mesta lagi 2-3 hundruð milljarðar.
Enginn góður kostur í stöðunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 14.11.2008 | 00:26 (breytt kl. 00:28) | Facebook
Færsluflokkar
Tenglar
Liðið mitt
Liverpool
Stjórnmál
- Egill Helgason
- Stefán Jón Hafstein
- Helgi Hjörvar
- Björgvin G. Sigurðsson
- Jóhanna Sigurðardóttir
- Silfur Egils
- Össur Skarphéðinsson
- Ungir jafnaðarmenn
- Samfylkingin
Alþingi og ríkisstofnanir
Fjölmiðlar
Visir.is
Bloggvinir
- Dofri Hermannsson
- Magnús Már Guðmundsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Gunnar Björnsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Jón Sigurgeirsson
- Sveinn Arnarsson
- TómasHa
- Árni Þór Sigurðsson
- Tómas Þóroddsson
- Óttarr Makuch
- Nýkratar
- Ómar Ragnarsson
- Lára Stefánsdóttir
- Guðríður Arnardóttir
- Hlynur Halldórsson
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Sigurður G. Tómasson
- Sigurður Óskar Leví Gíslason
- Alma Joensen
- Guðfinnur Sveinsson
- Agnar Freyr Helgason
- Stefán Þórsson
- Killer Joe
- Haukur Nikulásson
- Snorri Bergz
- Jón Steinar Ragnarsson
- Ársæll Níelsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Hreinn Hreinsson
- Stjórnmál
- íd
- Jón Þór Ólafsson
- Átakshópur um heilbrigða skynsemi í pólitískri umræðu
- Bleika Eldingin
- Egill Jóhannsson
- Hrólfur Guðmundsson
- Ellý Ármannsdóttir
- Hákon Baldur Hafsteinsson
- Vefritid
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- perla voff voff
- gudni.is
- Jón Halldór Guðmundsson
- Alfreð Símonarson
- Guðjón Baldursson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Óskar Þorkelsson
- Aðalsteinn Baldursson
- Bwahahaha...
- hreinsamviska
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Fannar frá Rifi
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Kjartan Jónsson
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Evrópusambandið er ekkert lausn úr þessum vanda sem stendur núna yfir, hér höfum við allt til alls. Við höfum mannauð, auðlindir, orku, helling af húsnæði undir alla, tækniþekkingu, samstöðu og fjalltinda sem kenna okkur að stefna hátt og ná háum markmiðum eins og segir í fornbókmenntum.
Við eigum ekki að aumingjast þótt við eigum erfitt núna og gefast bara upp og gefa frá okkur alla framtíðina, en það væri nú alveg eftir sumum pólitíkusunum okkar.
Haraldur Pálsson, 14.11.2008 kl. 01:10
Við getum ekki verið ein í heiminum!
Egill Rúnar Sigurðsson, 14.11.2008 kl. 01:14
Já þannig það eru bara tvennt í þínum huga? ESB eða loka hagkerfinu þá semsagt?
Ég mana þig til að kynna þér aðeins betur ávinninga þess fyrir ísland að ganga í ESB.
í ESB, er ekkert sem heitir EIN verðbólga, hún er misjöfn þar eftir löndum. Hugsaðu þig aðeins um hvernig verðbólgan yrði ef við fengjum núna 3,25% stýrivexti getur maður ímyndað sér verðbólguna hér?
Síðan færi illa fyrir landbúnaðinum okkar og þar myndu tapast mörg störf, þannig íslenska lambakjötið yrði forsagan.
Sjávarútvegurinn færi í drasl, því ESB tæki við veiðiráðgjöfinni og stillti upp veðiheimildum í okkar lögsögu til annara þjóða í sambandinu.
Í staðinn fengjum við evruna en bara kannski, ef verðbólgan yrði eitthverntíman í lagi á 3,25% stýrivöxtum þá gætum við mögulega fengið þessa frábæru evru.
Haraldur Pálsson, 14.11.2008 kl. 09:37
Hvernig væri bara að fá Norska seðlabankann til að taka yfir þann Íslenska og taka upp Norska krónu ?? Ég trúi því ekki að samfylkingin sé svo vitlaus að ætla að gefa landið okkar og allar auðlyndirnar með því að ganga í EES,eftir að þangað er komið erum við búin að missa sjálfstæðið samanber Írar sem komast ekki útúr EES af þeir ráða engu um það lengur það er alfarið í höndum EES að leyfa það.....
Marteinn Unnar Heiðarsson, 14.11.2008 kl. 09:40
http://otti.blog.is/blog/otti/entry/713923/
Set hér inn bloggfærslu mína vegna samþykktarinnar sem stjórn Samfylkingarinnar í Reykjavík sendi frá sér. Alveg með eindæmum að félag þess flokks sem er aðili að ríkistjórn landsins skuli vilja að flokkur sinn hlaupi frá ábyrgð þrátt fyrir að flokkurinn sjálfur beri klárlega mikla ábyrgð enda haft bankamálaráðherran nú í tæp tvö ár.
Óttarr Makuch, 17.11.2008 kl. 17:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.