Áfram Hillary!

HillaryÉg varð ákaflega glaður þegar ég heyrði að Frú Hillary Clinton ætlaði að sækjast eftir útnefningu demókrata til að verða næsti forseti Bandaríkjanna. 

Framboð hennar vekur manni von í brjósti, um að eftir áralanga setu hins öfgafulla og íhaldssama stríðsforseta George W. Bush, komi frambærilegur forseti. 

Hillary er mjög frambærilegur stjórnmálamaður, eins og kom vel í ljós bæði á meðan hún var forsetafrú í Hvíta húsinu og eins eftir að hún varð öldungardeildarþingmaður fyrir New York.  Áfram Hillary.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband