Guðni hrærir í blóði Framsóknar!

Þvíklíkur afleikur hjá karlinum!  Manninum sem er fullkomlega meðsekur um það hversu illa er nú komið fyrir þjóðinni. Að biðla síðan til Sjálfstæðisflokksins með þessum hætti, hlítur að þýða endanlegt andlát Framsóknarflokksins eða a.m.k. hans sem formanns.  Ekki trúi ég því að Valgerður flokkssystur hans vilji hlaupa aftur í fangið á Sjöllunum og aftaka t.a.m. Evrópusambandsaðild með öllu. 

Þá trúi ég því að 70-80% þjóðarinnar sé komin á þá skoðun að Seðlabankastjóranir verði látnir fjúka, þannig að vinsældir Guðna vaxa ekki við þessa ræðu!  Fyrst að Ingibjörg Sólrún lýsir svona afdráttarlaust yfir að seðlabankastjórarnir skuli víka þá er að mínu viti aðeins tvennt í stöðunni.  Annað hvort hefur verið samið um það við Sjálfstæðismenn á bak við tjöldin að þeir víki eða Samfylkingin er að búa sig undir stjórnarslit.  Fyrri atriðið þykir mér þó líklegra.

Að lokum vill ég leifa mér að spá því hér að Sjálfstæðisflokkurinn muni klofna fyrir næstu kosningar, svo djúpstæður er ágreiningurinn orðinn um Davíð, Evrópusambandið og frjálshyggjuna, svo eitthvað sé nefnt.  Eftir næstu kosningar verður Samfylkingin orðin lang stærsti flokkur landsins með um 40% atkvæða.


mbl.is Samfylking hrærir í blóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ætli þetta sé ekki bara hárrétt hjá þér?!

Mér finnst einhvern veginn í seinni tíð eins og Guðni sé alveg að fara á límingunum, líkt og sá á Svarta Loftinu.

Mér finnst að þegar um hægist þurfi að fara í miklu meir krufningu og kynningu á því hvað aðild í ESB myndi raunverulega þýða fyrir okkur hvað varðar náttúruauðlindir okkar, til þess að venjulegt fólk geti tekið afstöðu til umsóknar í það.

Það fældi mig frá því að kjósa Samfylkinguna í síðustu kosningum að ég var ekki sátt við áhersluna á inngöngu, án þess að fá að vita meira hvað í henni myndi felast.

Greta Björg Úlfsdóttir, 16.10.2008 kl. 01:14

2 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Góður punktur hjá Grétu.  Ég held nefnilega að hún tali fyrir munn ansi margra íslendinga.  Við vitum ekki nægilega mikið um hvað okkur býðst með inngöngu.

Maltverjar fóru inn eftir að hafa fengið 100 undanþágur, bæði tímabundnar og varanlegar.  Ætli okkur dugi 10?

Ég er að tala um að nánast sjúkdómalaus landbúnaður sé verndaður og að byggðirnar njóti fiskimiðanna, fyrst og fremst.    

Jón Halldór Guðmundsson, 16.10.2008 kl. 11:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband