Alveg er það með ólíkindum hvað menn geta verið veruleikafirtir. Menn sem sjá ekki nauðsyninna á því að leita til Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (IMF) eru annaðhvort veruleikafirrtir, heimskir eða vilja hreinlega deyja úr hungri af þjóðernishyggju. Ekki vil ég nú gera Ögmundi það upp að vera heimskur, hallast fremur að því að hann sé veruleikafirrtur eða þjóðernishyggjan að drepa hann. Frekar vil ég nú eiga til hnífs og skeiðar heldur enn að hanga á einhverju ímynduðu sjálfstæði.
Málið er bara einfaldlega þannig að þjóðarskútan hefur steitt á skeri og strandað og einu möguleikarnir fyrir hana til að komast aftur á flot er að leita til Alþjóða gjaldeyrirssjóðsins (IMF). Okkur eru allar bjargir bannaðar með lántökur, nema semja fyrst við IMF og fá einskonar gæðastimpill frá þeim, til þess að Seðlabankar annarra landa renni í slóðina og láni okkur fé ásamt IMF.
Staðreyndin er einfaldlega sú að okkur vantar fjármag til að standa við skuldbindingar okkar og koma hjólum atvinnulífsins á stað af ný. Ekki trúi ég því að Ögmundur og VG vilji að við neitum að standa við skuldbindingar okkar og eyðileggja þanning endanlega mannorð okkar í útlöndum. Honum láðist alveg að geta um valkostinn við IMF, hver er hann?
Rangt að skuldbinda ófædd börn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 20.10.2008 | 19:32 (breytt kl. 19:35) | Facebook
Færsluflokkar
Tenglar
Liðið mitt
Liverpool
Stjórnmál
- Egill Helgason
- Stefán Jón Hafstein
- Helgi Hjörvar
- Björgvin G. Sigurðsson
- Jóhanna Sigurðardóttir
- Silfur Egils
- Össur Skarphéðinsson
- Ungir jafnaðarmenn
- Samfylkingin
Alþingi og ríkisstofnanir
Fjölmiðlar
Visir.is
Bloggvinir
- Dofri Hermannsson
- Magnús Már Guðmundsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Gunnar Björnsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Jón Sigurgeirsson
- Sveinn Arnarsson
- TómasHa
- Árni Þór Sigurðsson
- Tómas Þóroddsson
- Óttarr Makuch
- Nýkratar
- Ómar Ragnarsson
- Lára Stefánsdóttir
- Guðríður Arnardóttir
- Hlynur Halldórsson
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Sigurður G. Tómasson
- Sigurður Óskar Leví Gíslason
- Alma Joensen
- Guðfinnur Sveinsson
- Agnar Freyr Helgason
- Stefán Þórsson
- Killer Joe
- Haukur Nikulásson
- Snorri Bergz
- Jón Steinar Ragnarsson
- Ársæll Níelsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Hreinn Hreinsson
- Stjórnmál
- íd
- Jón Þór Ólafsson
- Átakshópur um heilbrigða skynsemi í pólitískri umræðu
- Bleika Eldingin
- Egill Jóhannsson
- Hrólfur Guðmundsson
- Ellý Ármannsdóttir
- Hákon Baldur Hafsteinsson
- Vefritid
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- perla voff voff
- gudni.is
- Jón Halldór Guðmundsson
- Alfreð Símonarson
- Guðjón Baldursson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Óskar Þorkelsson
- Aðalsteinn Baldursson
- Bwahahaha...
- hreinsamviska
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Fannar frá Rifi
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Kjartan Jónsson
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Villi Vill söng svo viðeigandi:
.. æ ég hljóp svo hratt að ég hrasaði og datt
bíddu pabbi bíddu mín...
Hjálp frá IMF hefur sína kosti og sína galla einnig. Ef við þiggjum hjálp frá IMF þá eru ríkisstjórnin (og þá við almenningur) að viðurkenna að skuldin sem við eigum í erfiðleikum með að greiða sé okkar skuld, okkur að kenna.
Hvort sem skuldin sé okkar eða ekki þá virðist það vera staðreynd að Íslandi vanti gjaldeyri. Hversu mikinn gjaldeyri og til hvers verður hann nýttur? Eru kvaðir á aðstoð IMF? Eigum við að treysta því að þeir aðilar sem bera líklega ábyrgð á því að við erum í þessu veseni segi og geri.
Það er alveg jafn réttlátt að spyrja hvort IMF sé einhver töfralausn eins og að spyrja hverjir eru aðrir valkostir.
Björn Leví Gunnarsson, 20.10.2008 kl. 20:40
"Málið er bara einfaldlega þannig að þjóðarskútan hefur steitt á skeri og strandað"
Enda búið að vera blindafyllerí í brúnni .
Ögmundur er hræddur við IMF og vill frekar biðla til hinna Norðurlandaþjóðanna. Auðvitað átti að gera það áður en allt sigldi í strand, enda var búið að bjóða okkur gjaldeyrisskiptasamninga, en fylleríið slævði dómgreind skipstjórans og þynnkan slævir einnig. Ögmundur vill biðla til Norðmanna, enda hafa þeir getu, og hugsanlega vilja til að draga okkur í land (ef við höldum okkur við sjómennskulíkingar).
"Af hverju er Ögmundur svona hræddur við IMF?" spyr fólk sig væntanlega... vegna þess að hann er veruleikafirrtur... svarar þú.
Lestu hvað Joseph Stiglitz, fyrrum yfirhagfræðingur Alþjóðabankans og nóbelsverðlaunahafi hefur að segja um IMF og Alþjóðabankann: http://www.gregpalast.com/the-globalizer-who-came-in-from-the-cold/
Segðu mér svo hver er veruleikafirrtur.
Óskar (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 21:17
Jahérna! Hverjir eru það sem voru veruleikafirtir og eru enn veruleikafirtir? Svo mikið er víst að Ögmundur Jónasson tilheyrir ekki þeim flokki manna.
Hinir veruleikafirtu létu öll varnaðarorð sem vind um eyru þjóta, stungu öllu óþægilegu undir stól, - og virðast gera það enn, án þess að skammast sín. Til að bæta gráu ofan á svart böglast þessi skítseyði við að rífa kjaft eins og hvefsnir hundar. En sem betur fer munu hinir veruleikafirtu græðgishanar fá makleg málagjöld innan tíðar.
Jóhannes Ragnarsson, 20.10.2008 kl. 21:34
Ég er ekki að segja að IMF séu hvítþvegnir englar, þeir hafa vissulega framkvæmt margt misjafnt í fortíðinni Óskar (las greininna og vissi af þessu), en ég tel að þeir hafi lært sína lexíu og séu hættir þessarri ofstrú á frjálshyggjunni. Í dag er IMF hlutlaus í pólitík og virðir stefnur jafnt hægri sem vinstri ríkisstjórna. Gott eða slæmt Björn, þá er þetta eina leiðin að mínu mati, úr því sem komið er.
Ögmundur á að vísu hrós skilið fyrir að hafa ekki tekið undir útrásarkórinn og varað við afleiðingunum, þar var hann virkilega á jörðinni Jóhannes, en því miður hætti hann því og tók flugið einhverra hluta vegna.
Egill Rúnar Sigurðsson, 20.10.2008 kl. 23:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.