Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Held að staðan sé enn verri fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík!

Þessi könnun var tekin fyrir u.þ.b. mánuði síðan, eða áður en ráðning Jakobs Frímans kom til og vingulsháttur Ólafs í Vatnsmýrarmálinu og mörgu öðru varð ljós.  Þar af leiðandi tel ég að staðan sé enn verri fyrir Sjálfstæðisflokkinn en þessi.

Ég er sannfæður um það annaðhvort nær Samfylkingin meirihluta í næstu kosingum eða hún myndar meirihluta með VG.  Hvort heldur sem verður, þá verður Dagur B. Eggertsson næsti Borgarstjóri í Reykjavík, sem ég tel hann verðskulda.  Fólk var ánægt með hann í 100 daga meirihlutanum og það mun án efa verða ánægt með hann á næsta kjörtímabili.


mbl.is Fylgi Sjálfstæðisflokks minnkar mikið í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búið spil hjá mínum mönnum.

Þetta var vissulega svekkjandi, en Chelsea voru einfaldlega sterkari og ekkert annað að gera en að bíta í það súra epli!  Ég hafði það reyndar mjög sterkt á tilfinningunni að við myndum tapa þessu í þetta sinn, töpuðum þessu í raun á Anfield, með hinu fáránlega sjálfsmarki Riise 5 sekúndum fyrir leikslok.

Ég skil hins vegar ekki af hverju Torres var tekin út af!  Á vonandi eftir að fá skýringu á því.  Eins var ég ósáttur við að Babel skyldi ekki vera meira með, hann er maður sem á að mínu viti að spila í 90 mínútur, held að hann sé stórlega vanmetinn leikmaður.  En svona er þetta nú í boltanum, maður er aldrei fullkomlega sáttur.

Spái því að Man. United sigri meistaradeildina að þessu sinni.  Mér er hinsvegar nokk sama hvort þessara liða vinnur, vona bara að við fáum skemmtilegan og spennandi leik.


mbl.is Chelsea í úrslit í fyrsta sinn eftir 3:2 sigur á Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hermennskudraumar Björns Bjarnasonar?

Skemmtilegur hringitónn.  En þessar aðfarir lögreglunnar eru að mínu mati kómískar, svo ekki sé meira sagt, en um leið háalvarlegar.  Vissulega er lögreglunni kannski uppálagt að vara fólk við, þegar það er "gasað", en við eigum þessu ekki að venjast á Íslandi.  Þessi mótmæli bílstjórana, sem vissulega gengu full langt, kölluðu ekki á svona hörð viðbrögð, sem saklausir borgarar lentu meðal annara í.  Við hverju búast menn, að mæta með óeirðalögreglu á svæðið, með skildi, hjálma, kylfur og gas!

Það kæmi mér ekki á óvart, þó að ég hafi svo sem engar sannanir fyrir því, að þessar aðgerðir væru runnar undan rifjum æðsta yfirmanns lögreglunnar á Íslandi, Birni Bjarnasyni, sem hluti af "hermennskudraumum" hans.  Kannski hann sé að reyna að réttlæta þörfina fyrir 300 manna varaliði lögreglu!  Ég kann a.m.k. ekki við þessar aðfarir. 


mbl.is Gas! Hringitónn slær í gegn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skelfilegt slys!

Það var hræðilegt að horfa upp á þetta, mínir menn höfðu þetta í hendi sér og hefðu auðveldlega getað verið búnir að skora 2-3 mörk í viðbót, þegar 5 sekúndur eru til leiksloka, þá kemur maðurinn sem er fyrir löngu búinn að vera, John Arne Riise og skorar sjálfsmark! Mér leist aldrei á það að hann kæmi inná og hugsaði með mér, hann á eftir að klúðra einhverju.

Með þessu marki tryggði Riise að öllum líkindum Chelsea áfram.  Þó að mínir menn geti svo sem komið til baka, eins og þeir hafa svo oft sýnt, þá held ég að þessi hindrun verði þeim ofraun.  En maður heldur náttúrlega í vonina og fylgist áfram með. 


mbl.is Riise skoraði sjálfsmark og tryggði Chelsea jafntefli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nákvæmlega málið!

Ýtreka spá mína: 2-0 fyrir Liverpool!!  Torres skorar það fyrra, líklega á fyrstu 30 mínútum leiksins og Gerrard það síðara 10-15 mínútum fyrir leikslok!  Getur svo sem vel verið að Babel skori, en ég held fast við það að leikurinn fari 2-0.
mbl.is Gerrard: Okkar lið gefst aldrei upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðitíðindi að Gerrard verði með! Mín spá: 2-0!

Ég varð vægast sagt mjög feginn að heyra að Steven Gerrard, geti leikið með Liverpool í fyrri undanúrslitaleiknum á móti Chelsea.  Hann er náttúrlega lykilmaður liðsins ásamt Fernardo Torres. Þessi maður getur rifið upp liðsandann og unnið leiki upp á eigin spítur ef svo ber undir, svo nokkuð sé nefnt.
 
Ég er hreinlega að fara úr límingunum af spenningi.  Þarf að horfa á leikinn í Vestmannaeyjum, sem er ekkert vera.  Mér skilst að mikil stemming muni verða á Cafe Maria hér í Eyjum í  kvöld.  Ég spái því að mínir menn muni sigra 2-0 og margumræddir Gerrard og Torres muni skora!

mbl.is Gerrard verður með Liverpool annað kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið fagnaðarefni! Sjálfstæðismenn farnir að sjá ljósið!

Þetta er vissulega mikið fagnaðarefni, en ég hef í mörg ár verið eindreginn fylgismaður þess að Ísland gangi í Evrópusambandið.  Það þyrfti ekki að taka meira að tvö ár að komast inn, nokkurra mánaða viðræður, þjóðaratkvæðagreiðsla og svo yrðum við fullgildir meðlimir.

Ég verð þó að viðurkenna það að líklega skýrist þessi mikli stuðningur af ástandi efnahagsmála á landinu okkar góða.  Fólk treystir hreinlega ekki á það að ríkisstjórnir okkar og Seðlabanki geti skapað og viðhaldið stöðugleika í efnahagsmálum.

Hins vegar, segi ég eins og Jón Baldvin, að það muni ekkert gerast í þessum málum fyrr en Sjálfstæðisflokkur og Samfylking ná saman um það.  En það er nú ýmislegt sem bendir til þess að sjálfstæðismenn séu farnir að sjá ljósið.  A.m.k. tjá sig stöðugt fleiri yfirlýstir sjálfstæðismenn og lýsa yfir stuðningi við aðildarumsókn, enda held ég að þeir verði að gera það, ætli þeir ekki að verða viðskila við þjóðina.  Það kann hins vegar að vera að þeir / þau hafi alltaf verið þessarrar skoðunar en ekki þorað að tala fyrr en Davíð var farinn!


mbl.is 67,8 vilja hefja undirbúning aðildarumsóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fylgi flokksins mun sem sagt minnka enn meira!

Ég átti nú ekki von á þessu satt að segja.  Ég hef sagt það áður og segi enn, fylgi Sjálfstæðisflokksins mun minnka enn meir ef Vilhjálmur sest aftur í stól borgarstjóra.  Ef að þetta eru ráðleggingar Davíð, þá er kallinum verulega að förlast eða það er eitthvað annað á bak við þetta, eins og t.d. að reyna að endurvinna Gísla Martein sem pólitíkus!Villi Vill

mbl.is Vilhjálmur ætlar að sitja áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fínir samningar!

Ég er mjög ánægður með samningana og framlag ríkisstjórnarinnar til þeirra, einkum hækkun persónuafsláttar, leiðréttingu á vaxtabótakerfinu og hækkun á húsaleigu og barnabótum.  Auðvitað hefði maður viljað sjá meiri hækkanir, en þannig er það alltaf.  Ég tel að þetta séu bestu samningar fyrir láglaunafólk sem gerðir hafa verið í áratugi og óska þjóðinni til hamingju með það.
 
Þá er ekki hvað sísti ávinningurinn sá að friður á vinnumarkaði er tryggður a.m.k. næstu þrjú ár, þannig að grunnur hefur verið lagður að stöðugleika. 

mbl.is Taxtar hækka um 18.000 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borgarmálin skýra góða útkomu Samfylkingarinnar.

Ég held að það séu fyrst og fremst borgarmálin, sem skýra frábæra útkomu Samfylkingarinnar.  Glundroði Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn og einkum vandræðagangur Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar er alger. 

Eins og ég hef áður haldið fram, þá er alveg ljóst að VÞV, er algjörlega rúinn trausti borgarbúa, sem telja það hreina firru að hann setjist í Borgarstjórastólinn að nýju.  Þá er þessi endalausa óvissa um framhaldið farin að hafa áhrif á fylgi Sjálfstæðisflokksins á landsvísu.  Ef svo færi að VÞV ákvæði að setjast engu að síður í stólinn, sem ég efa nú mjög, þá er það vís leið til að flokkurinn tapi enn meira fylgi.

Á meðan Sjálfstæðismenn hafa verið að klúðra svona málum í borginni, hefur Dagur B. Eggertsson blómstrað og komist mjög vel út úr því gjörningarveðri sem þarna hefur ríkt.  Þá tel ég einnig að ráðherrar Samfylkingarinnar hafi margir hverjir komið sem ferskur andblær inn í ríkisstjórnina og njóti mikilla vinsælda, þó fylgisaukningin skýrist einkum af borgarmálunum og vandræðum Sjálfstæðismanna þar.


mbl.is Samfylkingin stærst allra flokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband