Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hrun frjálshyggjunar og pólitískar afleiðingar þess.

Fyrst hrundi kommúnisminn og nú hrynur frjálshyggjan.  Afleiðingar af hruni komúnismans urðu í meginatriðum þær að pólitíkin færðist öll til hægri.  Ef við ímyndum okkur pólitískann ás, þar sem stjórnmálaflokkum er raðað á ásinn frá vinstri til hægri, þá má segja að stór hluti af vinstri ásnum hafi verið "klipptur af".  Það sama mun gerast nú að mínu mati, en bara með öfugum formerkjum.  Hluti af hægri ásnum "klippist af", þannig að pólitíkin mun öll færast til vinstri.

En auðvitað er hin stóri sannleikur sá að öfgastefnur jafnt til hægri og vinstri hafa nú hrunið og sú stefna sem stendur upp sem sigurvegari, eða öllu heldur það þjóðfélagsskipulag sem heldur veli og hefur reynst best, er þjóðskipulag það sem evrópskir jafnaðarmenn hafa skapað.  Sósíaldemókratisminn er sú stjórnmálastefna, sem stendur uppi sem sigurvegari!


Stormskerinn.

Kíkið á þetta, ég hló mig máttlausanLoL

http://stormsker.blog.is/blog/stormsker/entry/683448/?t=0


Arleifð Davíðs.

Ég ætla mér ekki að vera með einhverja sleggjudóma hér og nú, en eitthvað segir mér svo hugur um að arfleifð Davíðs verði ekki máluð í þeim dýrðarljóma, sem flestir sjálfstæðismenn telja eða töldu.  Þessi "mikli" leiðtogi var og er kannski ennþá hjá einhverjum, talin vera einhver stórkostlegast stjórnmálamaður sem Ísland hefur eignast.  Við látum söguna um  að dæma!  Mín skoðun kemur síðar!

Hvort Davíð hafi varað menn við af einhverri alvöru skal ósagt látið.


mbl.is Davíð: Varaði ítrekað við að bankar væru í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrst IMF og síðan ESB og upptaka Evru.

Nú virðast samningarnir við IMF (Alþjóða gjaldeyrissjóðinn) loksins vera ganga í gegn, með tilheyrandi lántöku okkur til handa.  Þetta er eini raunhæfi kosturinn í stöðunni.  En hvað tekur svo við, hvað ætla menn að gera í sambandi við hina "geislavirku krónu"?  Mín skoðun er sú að eina  færa leiðin sé að lýsa því yfir að við ætlum að sækja um aðild að Evrópusambandinu og taka upp Evru svo fljótt sem verða má.  Með því, ásamt stóru gjaldeyrisláni og "stimpli" IMF þá styrkum við krónuna og menn vita þá að hún er tímabundin og stefnt er að upptöku Evru.

Ég á hins vegar ekki von á því að Sjálfstæðismenn hafi kjark og þor til að fara þessa leið.  Þá segi ég þetta; mínir menn í Samfylkingunni eiga þá hiklaust að setja þeim afarkosti.  Annaðhvort fallast þeir á það að sækja um aðild og leggja málið í dóm kjósenda, eða stjórnarsamstarfinu verður slitið og efnt til nýrra kosninga, þar sem almenningur fær tækifæri til að kveða upp sinn dóm. 

 Samfylkingin á ekki að þurfa að kvíða þeim dómi, hún ber ekki ábyrgð á nýfrjálshyggjunni, sem nú hefur beðið algjört skipbrot, hún ber ekki ábyrgð á því að trúa og treysta á krónuna sem gjaldmiðil.  Nei, þvert á móti hefur hún lengi haldið því fram að krónan væri ófær minnt í hinu alþjóðlega fjármagnskerfi, sem við búum við.  Ábyrgð stuðningsmanna krónunnar er hins vegar mikil!


mbl.is Sátt um IMF-lán í Seðlabanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er valkosturinn Ögmundur?!

Alveg er það með ólíkindum hvað menn geta verið veruleikafirtir.  Menn sem sjá ekki nauðsyninna á því að leita til Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (IMF) eru annaðhvort veruleikafirrtir, heimskir eða vilja hreinlega deyja úr hungri af þjóðernishyggju.  Ekki vil ég nú gera Ögmundi það upp að vera heimskur, hallast fremur að því að hann sé veruleikafirrtur eða þjóðernishyggjan að drepa hann. Frekar vil ég nú eiga til hnífs og skeiðar  heldur enn að hanga á einhverju ímynduðu sjálfstæði.

Málið er bara einfaldlega þannig að þjóðarskútan hefur steitt á skeri og strandað og einu möguleikarnir fyrir hana til að komast aftur á flot er að leita til Alþjóða gjaldeyrirssjóðsins (IMF). Okkur eru allar bjargir bannaðar með lántökur, nema semja fyrst við IMF og fá einskonar gæðastimpill frá þeim, til þess að Seðlabankar annarra landa renni í slóðina og láni okkur fé ásamt IMF. 

Staðreyndin er einfaldlega sú að okkur vantar fjármag til að standa við skuldbindingar okkar og koma hjólum atvinnulífsins á stað af ný.  Ekki trúi ég því að Ögmundur og VG vilji að við neitum að standa við skuldbindingar okkar og eyðileggja þanning endanlega mannorð okkar í útlöndum.  Honum láðist alveg að geta um valkostinn við IMF, hver er hann?


mbl.is Rangt að skuldbinda ófædd börn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er tími kommúnismans í nánd?

Karl MarxEkki er ólíklegt að kommúnisminn nái sér aftur á strik, vegna efnahagsástandsins og hrun kaptítalismans að margra mati.  Það var nú ansi mikið til í því sem hann hafði að segja um kapítalismann karlinn.

En því miður hefur komúnisminn engar lausnir að mínu mati, er m.a. í mótsögn við eðli mannsins, menn sætta sig hreinlega ekki við það að vera algjörlega jafnir, leitast alltaf við að gera betur en nágranninn.


mbl.is Auðmagnið selst vel í kreppunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðni hrærir í blóði Framsóknar!

Þvíklíkur afleikur hjá karlinum!  Manninum sem er fullkomlega meðsekur um það hversu illa er nú komið fyrir þjóðinni. Að biðla síðan til Sjálfstæðisflokksins með þessum hætti, hlítur að þýða endanlegt andlát Framsóknarflokksins eða a.m.k. hans sem formanns.  Ekki trúi ég því að Valgerður flokkssystur hans vilji hlaupa aftur í fangið á Sjöllunum og aftaka t.a.m. Evrópusambandsaðild með öllu. 

Þá trúi ég því að 70-80% þjóðarinnar sé komin á þá skoðun að Seðlabankastjóranir verði látnir fjúka, þannig að vinsældir Guðna vaxa ekki við þessa ræðu!  Fyrst að Ingibjörg Sólrún lýsir svona afdráttarlaust yfir að seðlabankastjórarnir skuli víka þá er að mínu viti aðeins tvennt í stöðunni.  Annað hvort hefur verið samið um það við Sjálfstæðismenn á bak við tjöldin að þeir víki eða Samfylkingin er að búa sig undir stjórnarslit.  Fyrri atriðið þykir mér þó líklegra.

Að lokum vill ég leifa mér að spá því hér að Sjálfstæðisflokkurinn muni klofna fyrir næstu kosningar, svo djúpstæður er ágreiningurinn orðinn um Davíð, Evrópusambandið og frjálshyggjuna, svo eitthvað sé nefnt.  Eftir næstu kosningar verður Samfylkingin orðin lang stærsti flokkur landsins með um 40% atkvæða.


mbl.is Samfylking hrærir í blóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð sagði líklega of mikið!

Ótrúlegt hvað Davíð getur stundum "blindað mann" með náðargáfu sinni.  Ég áttaði mig ekki á því fyrst í stað, að í viðtalinu í Kastljósi, þar sem hann beitti öllum sínum leiðtogahæfileikum og ræðusnilli og róaði fólk, væri að hann að skaða okkur enn frekar. 

Að mínu mati var hann einungis að segja sannleikann og það sem fólki flestu finnst, þegar hann sagði að ríkið ætti ekki að borga erlendar skuldir óreiðumanna, heyr, heyr!  En oft má satt kjurt ligga, einkum þegar tillit er tekið til þess að Seðlabankastjóri þjóðarinnar á í hlut.  Vissulega fylgjast menn grannt með orðum Seðlabankastjóra á þessum viðsjárverðu tímum, innlendir jafnt sem erlendir.

Ekki er ólíklegt að með þessum orðum Davíðs og að erlendir aðiliar fengju ekki nema 5-10 % af sínum kröfum hafi komið boltanum af stað, sem felldi Kaupþing.  Í framhaldinu var Kaupþing í Bretlandi knúið í greiðslustöðvun o.s.frv.  Held að Davíð hafi sagt of mikið!


mbl.is FME yfirtekur Kaupþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólýsanlegt afrek!

Ólafur Stefánsson í baráttu við Demetrio Lozano leikmann Spánar.Maður á ekki orð, ég hreinlega grét af gleði.  Maður vonaði auðvitað og trúði því að strákarnir gætu þetta en innst inni fannst manni þetta eiginlega vera of gott til að vera satt! 

Ég vil leyfa mér að fullyrða það að þetta sé stórkostlegasti árangur íslenskrar íþróttasögu.  Að 300 þúsund manna þjóð geti náð jafn langt og þetta er ólýsanlegt afrek!  En ævintýrið er ekki á enda, við gætum náð enn lengra.  En en eru það bara hugsanir, laganir og þrár, ekkert bíb, bara sigur, ef við deyjum, þá deyjum við a.m.k. lifandi a la Óli Stef.


mbl.is Íslendingar í úrslitaleikinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég sagði það! Glæsilegt!

Til hamingju Ísland.  Ég sagði það eftir forkeppnina hér heima að ef að við kæmumst ekki áfram núna þá væri eitthvað að og við ættum þá að hætta þátttöku.  En nú gerist ekki þörf á því og ég er að fara í Eurovisionpartý á laugardagskvöldið!

Framistaða þeirra Regínu og Friðriks á sviðinu í kvöld var frábær, söngurinn og hljóðið nánast óaðfinnanlegt.  Hvort þau komist hins vegar í topp 10 er hins vegar spurning.  Ég ætla að leyfa mér að spá því að Ísland lendi í 6. sæti í ár. 


mbl.is Ísland áfram í Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband