"Frelsisást Sjálfstæðisflokksins".

Úr verslun ÁTVRÞað er ekkert annað en helber aumingjaskapur hjá Sjálfstæðisflokknum að hafa ekki komið í gegn afnámi einkasölu ÁTVR á léttvíni.  Ef þeir hefðu verið búnir að því væru að opnast léttvínsverslanir víðsvegar um landið.  Þessi valda og kerfisflokkur sem kennir sig við frelsið og hefur verið við stjórn samfleytt í 16 ár hefur nú ekki sýnt þessa "frelsisást" sína í verki!  Fjölmiðlalögin, ofurtollarnir, frelsisskerðing Falon Gong, efling RÚV, símahleranir án dóms og laga svo eitthvað sé nefnt er til marks um þetta.

Samfylkingingin er aftur á móti mun frjálslyndari flokkur á mörgum sviðum.  Hún vill ekki þrengja að frjálsu fjölmiðlunum, ekki standa vörð um úrelt og miðstýrt landbúnaðarkerfi, ekki skerða frelsi manna til að mótmæla á friðsaman hátt, eða styðja símhleranir án dóms og laga.  Meirihluti Samfylkingarinnar á þingi styður einnig frelsi í sölu á léttvíni.  Frjálst markaðskerfi (innan skynsamlegra marka) ásamt með öflugu velferðarkerfi er sú stefna sem farið hefur sigurför um hinn vestræna heim og er sú stefna sem jafnaðarmannaflokkar hafa haldið á lofti.  Er ekki kominn tími til að við íslendingar förum að fordæmi þeirra?


mbl.is ÁTVR vill opna nýja vínbúð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þið drífið þetta í gegn í næstu ríkisstjórn með félögunum úr VG!

Kveðja

Sveinn

Sveinn V. Ólafsson (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 12:58

2 Smámynd: Sigurður Karl Lúðvíksson

Ég ætla að fá að leiðrétta eitt. Allur sjálfstæðisflokkurinn stendur á bakvið léttvínsfrumvarpið einir flokka samkvæmt viðtali samtaka atvinnulífsins við formenn stjórnarflokkana, samfylkingin var bæði og, þ.e 50-50 og allir hinir á móti. En að öðru leiti er það rétt að það er helber aumingjaskapur að klára ekki málið með fulltingi samfylkingarinnar. Samfylkingin er heldur betur á réttri leið með þessari frjálsræðisstefnu sinni, en fyrir mig persónulega eru þeir enn of mikið að hygla félagsþjónustuna á kostnað hagvaxtar. Það þarf að vera til peningur fyrir félagsþjónustu, til þess þarf hagvöxt en ekki taka endalaus lán eins reykjarvíkurlistinn. En þið eruð á góðri leið ef þið hristið af ykkur vinstri grýluna í hagstjórn.

Sigurður Karl Lúðvíksson, 30.3.2007 kl. 13:22

3 Smámynd: Egill Rúnar Sigurðsson

Veit að þú hefur ekki trú á því að við drífum þetta í gegn með VG Sveinn, en ég er viss um að þetta kemst ekki í gegn fyrr en við förum í ríkisstjórn og það þrátt fyrir það að við verðum í stjórn með VG.  Við myndum hafa manndóm í okkur til að koma málinu í atkvæðagreiðslu og þá væntanlega (vonandi) fá stuðning Sjálfstæðisflokksins í málinu!

Egill Rúnar Sigurðsson, 30.3.2007 kl. 15:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband