Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Kemur einhvejum það á óvart að Geir Haarde finnist ríkisstjórn án þátttöku Sjálfstæðisflokksins vera versta kostinn! Ég er viss um að formönnum allra flokka finnist ríkisstjórn án þátttöku síns flokks vera slæman kost!
Morgunblaðið er þarna komið í sinn hefðbundna kosningagír, þar sem það breytist úr því að "vera blað allra landsmanna" í það að vera flokksmálgagn Sjálfstæðisflokksins. Ingibjörgu Sólrúnu og Steingrími J. finnst versti kosturinn vera sá að núverandi stjórnarflokkar haldi áfram. Er það þá ekki jafnmikil frétt?! Vægast sagt undarlegt fréttamat, eða hafði Geir ekkert merkilegra en þetta að segja?
![]() |
Geir H. Haarde telur samstarf Samfylkingar og VG versta kostinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 23.3.2007 | 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
VG er enn á uppleið, fengi 27,6% atkvæða og 17 Þingmenn! Ef flokkurinn fær þetta fylgi í kosningum yrði það einn stærsti kosningasigur sem nokkur flokkur hefur unnið á Íslandi. Svo virðist sem íslendingar hafi tekið mikla "vinstirbeygju". Fólk á vinstri væng stjórnmálana virðist þannig vera að hafna frjálslyndum viðhorfum jafnaðarmanna, svo sem afnámi verndartolla í landbúnaði, umsókn um aðild að Evrópusambandinu og áherslu á frjálsa samkeppni svo eitthvað sé nefnt. Líklegasta skýringin á þessu mikla fylgi VG eru umhverfismálin og þar eru þeir auðvitað sterkir og sannarlega á réttri línu.
Hvað aðra flokka varðar, hefði ég haldið að Framsóknarflokkurinn myndi frekar fara niður í fylgi en upp (fær 8,6%) eftir fullkomna sneypuför í auðlindamálinu, þar sem niðurlæging þeirra varð alger. Sjálfstæðisflokkurinn tapar eðlilega fylgi þar sem að hann kemur sér algerlega undan því að taka afstöðu í þeim málum sem heitast brenna á þjóðinni, svo sem umhverfis og stóriðjumálum, verðlags og efnahagsmálum og velferðarmálum svo eitthvað sé nefnt, enda eins og gárúngarnir segja; "ég er nú svo ópólitískur að ég kýs bara Sjálfstæðisflokkinn"!
Flokkurinn minn, frjálslyndi jafnaðarmannaflokkurinn, Samfylkingin, hefur því miður ástæðu til að hafa áhyggjur, fær ekki nema 19.7% fylgi. Ég er auðvitað mjög óhress með það að frjálslynd viðhorf skuli ekki njóta meira fylgis, en það er einfaldlega þannig að ef VG fer upp þá fer Samfylking niður og öfugt. Samfylkingin virðist þó fyrst og fremst vera að tapa kvennafylginu yfir til vinstri grænna, sem skítur svolítið skökku við, þar sem Samfylkingin hefur í forystu öfluga stjórnmálakonu sem hefur sýnt það bæði í orði og verki að hún lætur sig jafnréttismál miklu varða.
Það sem er hins vegar athyglisverðast við þessa könnun sem margar fyrri kannanir og er jákvætt, er í fyrsta lagi að ríkisstjórninn er kolfallin og í annan stað að vinstri flokkarnir tveir Samfylking og VG hafa samanlagt 47,3% fylgi og eru nálægt því að ná hreinum meirihluta saman.
![]() |
VG áfram í mikilli sókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 23.3.2007 | 11:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Óska Ómari og Margréti til hamingju með flokkinn og formanns og varaformannsembættin. Ég er hins vegar ansi hræddur um að þau munu fyrst og fremst taka fylgi frá þeim sem eru umhverfisverndarsinnar og andstæðingar ríkisstjórnarinnar, einkum VG og hugsanlega einnig frá Samfylkingunni, enda eru boðaðar áherslur þeirra í miklum samhljómi við stefnu hennar. Ég óttast að mörg atkvæði umverfis og náttúruverndarsinna muni falla dauð. Vonandi hef ég þó rangt fyrir mér. Hef reyndar ekki trú á því að þau munu ná nema í mesta lagi 5-7% fylgi í kosningunum, líklegra að fylgið verði 3-5%.
![]() |
Ómar formaður og Margrét varaformaður Íslandshreyfingarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 22.3.2007 | 23:42 (breytt 23.3.2007 kl. 09:44) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Viðkomandi ökuníðingur á á ekki annað skilið en finnast og verða dæmdur fyrir þennan vítaverða akstur. Mótorhjól á þessum hraða er ekkert annað en mjög öflugt drápstæki. Það er ekki ökumanninum að þakka að hann drap ekki sjálfan sig eða aðra, jafnvel fleiri en einn. Þetta er hvorkí kúl né töff, þetta er hrein fífldirfska. Spurning hvort rétt sé að birta svona myndskeið í sjónvarpi, hætta er á því að yngri kynslóðinni finnist þetta eitthvað sniðugt.
![]() |
Myndir af mótorhjóli á ofsahraða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 22.3.2007 | 21:48 (breytt kl. 21:55) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)

![]() |
Neyddist til að kyssa Jolie |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 22.3.2007 | 12:42 (breytt kl. 12:47) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Annað banaslys ársins er því miður orðið staðreynd. Enn og aftur er það Suðurlandsvegur, sem tekur "þennan toll". Ég er sannfærður um það, að ef til tvöföldunar hefði verið komið, hefði þetta banaslys ekki átt sér stað.
Hversu mörg banaslys þurfa að verða til þess að yfirvöld átti sig á því að grípa verði til aðgerða! Framkvæmdir verða að hefjast strax við tvöföldun Suðurlandsvegar, það bjargar mannslífum!
Ég votta aðstandendum samúðar minnar.
![]() |
Kona lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 21.3.2007 | 20:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Í prinsippinu er ég hlynntur hvalveiðum og tel okkur í fullum rétti sem sjálfstæða þjóð að stunda þær. Hins vegar verðum við að taka mið af skoðunum annara þjóða, hversu vitlausar sem okkur finnst þær. Við verðum að fórna minni hagsmunum fyrir meiri. Ég er sannfærður um að við erum að tapa miklu meira á þessu heldur en að græða.
Fyrst að við ákváðum að fara út í það að hefja hvalveiðar á annað borð þá hefðum við þá átt að gera það af viti og veiða eitthvað magn sem máli skipti, en ekki einhverjar 7 eða 9 langreiðar eða hvað það var. En hið alþjóðlega umhverfi er einfaldlega orðið þannig að við getum ekki staðið í þessu öðruvísi en að ferðaþjónustan og íslenskir viðskiptahagsmunir líði fyrir það.
![]() |
Álíka margir ánægðir og óánægðir með að hvalveiðar skuli hafnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 21.3.2007 | 12:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Átti mjög erfiðan dag vægast sagt! Byrjaði daginn á því að kenna á vörubifreið í Reykjanesbæ í brjáluðu slagviðri, sem ekki væri í frásögu færandi ef vörubílinn hefði ekki orðið olíulaus með nemandann undir stýri úti í Höfnum af öllum stöðum! Þar sem olíumælirinn var bilaður og ég hafði nýlega sett á hann olíu, gætti ég mín ekki á því að bílinn hafði verið í prófum allan mánudaginn og var þar af leiðandi orðinn mjög olíulítill þrátt fyrir það að mælirinn sýndi annað. Ekkert annað en aulaskapur hjá mér! Þurfti þ.a.l. að brasa við það í hvassviðri og grenjandi rigningu að koma mér inn í Keflavík, ná í olíu á brúsa, aftur út í Hafnir (þar sem ekki er einu sinni sjoppa, hvað þá bensínstöð), tappa olíu af hráolíukerfinu og koma bílnum í gang, sem reyndar gekk ágætlega miðað við aðstæður!
Ekki tók betra við þegar á höfuðborgarsvæðið var komið! Byrjaði á því að hjálpa fátækum námsmanni að endurheimta bíl sinn, eftir að hann hafði verið dreginn í burtu og klippt af honum. Námsmaðurinn hafði orðið bensínlaus á leið í skólann á slæmum stað og tekið þá ákvörðun að skilja hann eftir um stundarsakir til að missa ekki af tímanum í skólanum! Áður hafði verið búið að líma á bílinn hans boðun í skoðun. Fór með námsmanninum í Krók á Dalvegi í Kópavogi til að sækja bílinn. Þar var okkur sagt að lögreglumennir sem komu með bílinn hafi verið svo illir yfir því hvar bílinn var skilin eftir að þeir hafi ákveðið að klippa af honum líka! Þetta finnst mér ekki boðleg vinnubrögð hjá lögreglunni í Kópavogi! Þeir höfðu að vísu fulla heimild til að klippa af bílnum, en að láta það spyrjast út að þeir hafi gert það vegna þess að þeir hafi orðið svo illir eð fúlir getur ekki talist eðlilegt, en það er önnur saga.
Svo drógum við bílinn yfir í Frumherja á Dalvegi til skoðunar, sem gekk vel, bílinn fékk fulla skoðun. En þegar kom hins vegar að því að endurheimta númerin fór aftur að syrta í álinn! Ég hafði fengið þær upplýsingar hjá Frumherja að númerin væru líklegast á Dalvegi, þar sem að lögreglan í Kópavogi færi vanalega með þau þangað ef klippt væri af bílum í Kópavogi. Svo reyndist hins vegar ekki vera og mér var sagt að þau væru niður í Umferðarstofu í Borgartúni. Við fórum því þangað, en án árangurs! Þau reyndust ekki vera þar og í ofanálag var mér sagt að þó að þau hefðu verið þar myndi ég ekki fá þau afhent þar sem að einungis skráður eigandi bílsins gæti leyst þau út, sem í þessu tilviki er afi námsmannsins. Ekki vildi ég gefast upp, þannig að ég hringdi í lögregluna í Kópavogi, sem tjáði mér að númerin væru hjá þeim og þeir skyldu koma þeim til Frumherja á Dalvegi. Þetta hafðist fyrir rest og við fengum númerin afhent.
Þegar ég hafði leyst vandamál námsmansins tók ekki betra við, vindlaust varð á jeppanum mínum og ég fór á næsta dekkjaverkstæði, sem reyndist vera Kaldasel á Dalvegi. Þar var mér sagt að dekkið væri ónýtt, en því miður ættu þeir ekki annað dekk sömu stærðar! Því varð að setja varadekkið undir, sem er minna en hin og í ofanálag vantaði þrjár rær sem þeir áttu heldur ekki til! Þá ákvað ég að fara í VDO hólbarðarverkstæðið í Borgartúni, þar sem ég keypti dekkin á sínum tíma, þeir hlytu að eiga þetta. En ekki var það svo gott! Mín stærð var búin og ekkert sem þeir gætu gert! Ég hugsaði með mér hvað meira gæti gerst í dag! Þaðan fór ég upp í Sólningu á Smiðjuveginum og sem betur fer gátu þeir bjargað mér (kostaði lika skildinginn), ég fékk bæði nýtt dekk og rær!
Stjórnmál og samfélag | 21.3.2007 | 01:38 (breytt kl. 01:48) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Rétt væri að refsa þeim stjórnmálaflokkum sem stóðu fyrir þessum stærstu mistökum. sem gerð hafa verið í íslenskum utanríkismálum, með því að kjósa þá ekki í komandi kosningum! Það er að vísu fleira en þessi ákvörðun sem þarf að refsa þeim fyrir, en er að mínu viti nægjanleg ástæða til þess ein og sér. Stuðningur við þessa innrás og að Ísland skyldi sett á lista yfir hina "staðföstu og viljugu" er og verður smánarblettur á íslenskri utanríkisstefnu.
Ég er því hjartanlega sammála "hinum staðföstu stríðsandstæðingum" um að aldrei hafi það verið augljósara en nú fjórum árum eftir innrásina hversu mikil mistök þetta hafi verið. Þeir sem halda öðru fram eru að mínu mati raunveruleikafirtir.
![]() |
Stríðsandstæðingar krefjast þess að íslensk stjórnvöld axli ábyrgð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 19.3.2007 | 23:58 (breytt 20.3.2007 kl. 00:02) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
![]() |
Fyrningarfrestur á kynferðisafbrotum gegn börnum afnuminn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 18.3.2007 | 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Færsluflokkar
Tenglar
Liðið mitt
Liverpool
Stjórnmál
- Egill Helgason
- Stefán Jón Hafstein
- Helgi Hjörvar
- Björgvin G. Sigurðsson
- Jóhanna Sigurðardóttir
- Silfur Egils
- Össur Skarphéðinsson
- Ungir jafnaðarmenn
- Samfylkingin
Alþingi og ríkisstofnanir
Fjölmiðlar
Visir.is
Bloggvinir
-
Dofri Hermannsson
-
Magnús Már Guðmundsson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Sveinn Ingi Lýðsson
-
Sigfús Þ. Sigmundsson
-
Gunnar Björnsson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
Jón Sigurgeirsson
-
Sveinn Arnarsson
-
TómasHa
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Tómas Þóroddsson
-
Óttarr Makuch
-
Nýkratar
-
Ómar Ragnarsson
-
Lára Stefánsdóttir
-
Guðríður Arnardóttir
-
Hlynur Halldórsson
-
Hlynur Hallsson
-
Hlynur Þór Magnússon
-
Sigurður G. Tómasson
-
Sigurður Óskar Leví Gíslason
-
Alma Joensen
-
Guðfinnur Sveinsson
-
Agnar Freyr Helgason
-
Stefán Þórsson
-
Killer Joe
-
Haukur Nikulásson
-
Snorri Bergz
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Ársæll Níelsson
-
Svanur Sigurbjörnsson
-
Hreinn Hreinsson
-
Stjórnmál
-
íd
-
Jón Þór Ólafsson
-
Átakshópur um heilbrigða skynsemi í pólitískri umræðu
-
Bleika Eldingin
-
Egill Jóhannsson
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Ellý Ármannsdóttir
-
Hákon Baldur Hafsteinsson
-
Vefritid
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
perla voff voff
-
gudni.is
-
Jón Halldór Guðmundsson
-
Alfreð Símonarson
-
Guðjón Baldursson
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Óskar Þorkelsson
-
Aðalsteinn Baldursson
-
Bwahahaha...
-
hreinsamviska
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Fannar frá Rifi
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Evrópusamtökin, www.evropa.is
-
Kjartan Jónsson
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar