Sjálfstæðismenn blóðugir upp að öxlum!

Nú er það sannarlega komið á daginn, sem ég skrifaði um daginn að Sjálfstæðisflokkurinn logar í innanhúsátökum. FL og Landsbanka hneykslið á uppruna sinn innan flokksins, því var komið á framfæri við fjölmiðla til þess að koma höggi á pólitíska andstæðinga innan hans, einkum Guðlaug Þór Þórðarson.

Davíðsklíkan stendur nú fyrir fundum út um allan bæ til að reyna koma höggi á Guðlaug Þór og hans menn og fá hann til að segja af sér. Þeir fara mikinn í bloggheimum þar sem því er haldið fram að háværar raddir séu um það innan flokksins að Guðlaugur víki. Heimildarmenn mínir innan flokksins, segja hins vegar að þetta sé ekki rétt, þessar háværu raddir komi frá örfáum aðilum í Davíðsklíkunni.

Ekki leiðist okkur andstæðingum flokksins það að hann sé að éta sjálfan sig innanfrá. Að flokksmenn skuli vera svo hatursfullir út í hvern annan að þeir séu tilbúnir að draga flokkinn niður í skítin er með hreinum ólíkindum!

mbl.is Ömurlegar fréttir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband