Rekið Benítez strax!

Hvernig í andskotanum stendur á því að Benítez tekur einn helsta og besta markaskorara liðsins út af 25 mínútum fyrir leikslok og tapar þar með af sæti í meistaradeildinni á næsta tímabili! Mér er gjörsamlega fyrirmunað að skilja það hvað vakti eða vakir fyrir manninum! Það mætti hreinlega halda að hann vildi verða rekinn! Hins vegar tel ég að mannfíflið hafi verið að hugsa um að spara Torres fyrir leikinn gegn Benfica á miðvikudaginn. En það finnst mér algjörlega óásættanlegt með öllu að fórna Meistaradeildinni, fyrir þennan Evrópubikar.
mbl.is Birmingham og Liverpool skildu jöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Örvæntingarfull tilraun eigenda til að bjarga deyjandi miðli.

  Hér er á ferðinni örvæntingarfull tilraun eigenda Morgunblaðsins, til að bjarga deyjandi fjölmiðli.  En að veðja á þennan hest finnst mér heldur hæpið og bera vott um mjög alvarlega Örvæntingu, sem brenglar í senn skynsemi og dómgreind.  En ég ætla ekki að fara nánar út í þá sálma hér.

  Fyrir utan það að ganga endanlega að Morgunblaðinu dauðu  (efast þó ekki um að fjölmargir aðdáendur Davíðs munu gerast áskrifendur á ný, kannski álíka margir og munu segja því upp), held ég að pólitískar afleiðingar geti orðið nokkar, þar á meðal sú að Sjálfstæðisflokkurinn muni klofna.  Staðreyndin er einfaldlega sú að Davíð á orðið marga óvildarmenn í flokknum, sem einfaldlega vilja hann burt úr pólitískri umræðu.  Þá held ég að Bjarni Ben verði ekki hress með að hafa Davíð andandi ofan í hálsmálið á sér!

 

 


mbl.is Davíð og Haraldur ritstjórar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sálfræðihernaðurinn er hafinn!

Alveg er hann magnaður þessi náungi, deildin ekki hafin en sálfræðihernaðurinn byrjaður hjá kalli!!  Fyrir mér þýða þessi orð bara eitt; HANN ER SKÍTHRÆDDUR VIÐ LIVERPOOL!!  Ég held hins vegar að afskrifa megi Man U á næsta tímabili, því án Ronaldo og Teves gera þeir engar rósir!

Liverpool tekur titillinn næsta vor!


mbl.is Ferguson afskrifar titilvonir Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikill gleðidagur! Sögulegur dagur!

Til hamingju Íslendingar!  Nú eigum við von!  euFlagAnimate  iceland
mbl.is Samþykkt að senda inn umsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frelsarinn mikli!

Davíð, Davíð, Davíð, alveg er hann með ólíkindum þessi maður!  Kemur enn einu sinni fram eins og hann hafi ekkert gert af sér ekkert sé honum að kenna.  Valdamesti maður landsins frá 1991 til 2008, þegar loksins tókst að bola honum burt úr stól Seðlabankastjóra.  Ef að það er einhverjum að "kenna" að við ákváðum að greiða lágmarksinnistæðu tryggingar varðandi Icesave, þá er það honum og hans flokki og vissulega einnig Samfylkingunni, sem taldi og telur að við verðum að greiða þessar 28.000 evrur á mann.

Helbert kjaftæði í kallinum og hárrétt hjá Steingrími að þetta sé einkar ódýr og ósvífin afgreiðsla á hans þætti í málinu öllu saman.  Mér finnst raunar maðurinn svo veruleikafirrtur að við hann eigi ekki að taka fekari viðtöl.  Hins vegar er það ákveðið umhugsunarefni hvers vegna þjóðin fer ennþá á hvolf í hvert sinn sem Davíð opnar munninn!


mbl.is Ósvífin og ódýr afgreiðsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversu erfitt er að skilja þetta...

við einfaldlega verðum að standa við skuldbindingar okkar varðandi Icesave!  Mér er það að minnsta kosti fullkomlega ljóst að ekki verður aftur snúið!  Ég ætla ekki að fara út í þann rökstuðning hér, nógu margir hafa orðið til þess.

Auðvitað er skelfilegt að þurfa að að blæða fyrir útrásarvitleysuna, en það var nú eiginlega vitað mál að svo yrði.  Öll brigsl manna um landráð eða eitthvað þaðan af verra eru fyrir neðan öll velsæmismörk og bera fyrst og fremst vott um fáfræði og vanþekkingu þeirra sem í hlut eiga!


mbl.is „Ekkert plan B"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Söguleg úrslit! Framsókn með í ríkisstjórn?!

Fyrst og fremst eru úrslit Alþingiskosninganna söguleg í tvennu tilliti.  Í fyrsta skipti í sögunni ná vinstri flokkar meirihluta á Alþingi og í fyrsta skipti í á lýðveldistímanum er annan flokkur en Sjálfstæðisflokkurinn stærsti flokkur landsins.  Í fyrsta skipti í sögunni eru jafnaðarmenn stærsti flokkur landsins.

Nú ríður á að vinna vel úr þessum spilum, sýna og sanna að vinstri mönnum sé vel treystandi við stjórn landsins.  Gífurlega erfiðar ákvarðanin eru framundan, eins og endureisn bankakerfisins og stórfelldur niðurskurður í ríkisútgjöldum.  Við slíkar aðstæður er nauðsynlegt að hafa jafnaðar og félagshyggjumenn við stjórnvölinn.

Einsýnt er að Samfylkingin og VG fara saman í næstu ríkisstjórn.  En ég tel hins vegar bæði rétt og nauðsynlegt að taka Framsóknarflokkinn með í stjórn.  Bæði er það að 5 manna meirihluti er líklega ekki nægur vegna þeirra erfiðu ákvarðana sem ráðast þarf í og hitt er að með því gæti VG betur losnað undan einarðri evrópuandstöðu sinni gagnvart kjósendur sýnum.  Þannig gætu þeir betur réttlætt það fyrir kjósendum sýnum að sækja um aðild að Evrópusambandinu, sem ég er ekki í vafa um að verði gert.


mbl.is Nýtt Alþingi Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nakin hagsmunabarátta sægreifa!

Sægreifar fara nú mikinn í gagnrýni sinni á vinstri flokkana og einskis er látið ófreistað í þessari blóðugu hagsmunabaráttu þeirra.  FLokki þeirra tóks að koma í veg fyrir það að sameign þjóðarinnar á auðlindum yrði fest í stjórnarskrá og nú á að reyna að rífa fylgi vinstri flokkana niður með öllum tiltækum ráðum. 

Þetta myndband kom upp í hugann http://www.youtube.com/watch?v=gO8geuKR2uM þó það tengist þessari frétt þó ekki beint, en óbeint!


mbl.is Hótanir ráðherra ekki við hæfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðismenn blóðugir upp að öxlum!

Nú er það sannarlega komið á daginn, sem ég skrifaði um daginn að Sjálfstæðisflokkurinn logar í innanhúsátökum. FL og Landsbanka hneykslið á uppruna sinn innan flokksins, því var komið á framfæri við fjölmiðla til þess að koma höggi á pólitíska andstæðinga innan hans, einkum Guðlaug Þór Þórðarson.

Davíðsklíkan stendur nú fyrir fundum út um allan bæ til að reyna koma höggi á Guðlaug Þór og hans menn og fá hann til að segja af sér. Þeir fara mikinn í bloggheimum þar sem því er haldið fram að háværar raddir séu um það innan flokksins að Guðlaugur víki. Heimildarmenn mínir innan flokksins, segja hins vegar að þetta sé ekki rétt, þessar háværu raddir komi frá örfáum aðilum í Davíðsklíkunni.

Ekki leiðist okkur andstæðingum flokksins það að hann sé að éta sjálfan sig innanfrá. Að flokksmenn skuli vera svo hatursfullir út í hvern annan að þeir séu tilbúnir að draga flokkinn niður í skítin er með hreinum ólíkindum!

mbl.is Ömurlegar fréttir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin myndi hagnast á því að opna bókhald sitt.

Samfylkingin á að mínu mati hiklaust að opna bókhald sitt og sýna fram á það sem ég efast ekki um að engir viðlíka styrkir og Sjálfstæðisflokkurinn fékk hjá FL group og Landsbankanum áttu sér stað.

Málið er það að að fréttir af þessum styrkjum til Sjálfstæðisflokksins eru alvarlegri tíðindi fyrir flokkinn en margir gera sér grein fyrir.  Hér kann að vera úm eitt stærsta stjórnmálahneyksli sögunnar að ræða.  Þá er sú tilraun flokksins að aðgreina sig frá auðhringjunum og útrásarvíkingunum fyrir bí.

Að lokum vil ég segja það að lofa því að hækka ekki skatta eftir kosningar, eins og Sjálfstæðisflokkurinn gerir nú er argasta hræsni og ber vott um það að flokkurinn trúir því í rauninni ekki að hann fari í stjórn eftir kosningar.  Það er alveg sama hvaða flokkar verða í stjórn eftir konsningar, einhverjir skattar verða hækkaðir, það er óhjákvæmilegt!


mbl.is „Hvítþvegin bleyjubörn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband